Halló halló halló allir mínir ástarpungar
og rúsínurassar
! Þvílíkt orðaval...og svo
finnst okkur krúttulegt að segja þetta en ef ég mínusa
"ástar" úr fyrra orðinu og "rúsínu" frá því seinna þá er ég
bara dóni..? Eins og kvennsjúkdómalæknir sé eitthvað
perralegra en tannlæknir..? Eða hvað? Æ pæling... Hefurðu
einhverja skoðun á þessu?
Tæland með myndum og sögum verður samt að bíða,
ég er ekki komin með allar myndirnar svo þið verðið bara að reyna
að hemja ykkur
Fílbak, apastrendur, drulluskítugt sóðahótel,
vændiskonur, hákarlar, dansandi nunnur... já TO BE
CONTINUED
Út í aðra sálma.........
Eiður Smári að brillera, já strákurinn "OKKAR" er
alveg meðetta!
Fellibylur á Filippseyjum...já guði sé lof að ég
sé komin heim frá Thai, hefði ekki verið neitt svaka afslappandi að
trítla um á ströndinni þá...
Nýr landsliðsþjálfari í kvennalandsliðinu! Jáhá,
Siggi Raggi eða Sigurður Ragnar Eyjólfsson tekur við landsliðinu!
Nýtt blóð í bláa búninginn, ekkert nema gott um það að segja

Jólin eru ekki á leiðinni í mitt hjarta, veit
ekki alveg en þessi jólahjólafílingur er ekki að láta vita af
sér..er einhvernvegin bara nýkomin úr bikiníinu... En fjölskyldan á
leiðinni hingað með jóla-cd í ferðatöskunni, Stebbi hilmars klikkar
ekki
þá ætti þetta nú að detta í gírinn
Er með jólakvebbann, já alveg klassískt að fá
stíbbbblad nef og hósta núna
Allir í prófum, sveittir og stressaðir, koma svo,
þið klárið þetta með stæl 
Ég kem heim 22. sakna ykkar, hlakka svo til að
sjá ykkur,hittast, spjalla og hlæja
KR-bloggið er heitt þessa dagana, jeminn
almáttugur ég ligg í kasti hérna á hverjum degi! kíktu á það!
http://blog.central.is/storveldi
En jæja, tími til að hendast niður með þvottinn,
minn þvottatími er genginn í garð´, kveð að sinni með einni mynd
frá Tælandi...þar sem maður er að biðja fyrir komandi
átökum...

Later...