Jeminn, fékk léttan sting í magann þegar ég skrifa
"20.desember"... alveg unbelívebúl hvað tíminn líður hratt!
Familían í heimsókn, sem er ekkert smá gaman. Við erum búin að
vera að súlla okkur í bænum og jólagjafirnar allar að
skila sér í hús svo það verður ekkert stress að reyna að finna
síðustu pakkana á Þorláksmessu
Pabbi tók sig til og málaði
íbúðina mína á fyrsta degi....og ég og mamma brunuðum í IKEA og
keypptum hellings
ég er ekkert smá ánægð með þetta! svo núna er
það eina sem vantar að fá upp hillur og myndir á vegginga og svo
sæta smáhluti sem maður safnar að sér smám saman
Plan dagsins er að fara í Jólatívolíið í Köben, ekkert svo
leiðinlegt held ég
Svo veit ég ekki alveg með bloggið...þið verðið að commenta
folks!
eða verðið...það er ekki til neitt í heiminum sem maður "verður"
að gera, eigum altaf val...en eníveis... 2 dagar í Ísland... snilld
snilld snilld 
D.